Menntaskólinn á Tröllaskaga - búnaðarkaup
- Verkkaupi: Mennta- og menningarmálaráðuneytið
- Staða: Verkefni lokið
- Verkefnisnúmer: 602 0032
- Verkefnastjóri: Sigurður Hlöðversson og Sigurður Norðdahl
- Tímaáætlun: Verklok voru í desember 2017
Um verkefnið
Að beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytisins í júní 2017 hóf Framkvæmdasýsla ríkisins útboð og innkaup á búnaði í viðbyggingu Menntaskólans á Tröllaskaga, Ólafsfirði. Búnaðarkaupin náðu til búnaðar í móttökueldhús, húsgagna í fjölnotasal og nemendarými, sviðs, hljóðkerfis, skjávarpa og skjávarpatjalda og búnaðar fyrir viðhald á skíðabúnaði og fleira.
Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri.
Skilagrein
Skilagrein um Menntaskólann á Tröllaskaga - búnaðarkaup var unnin samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda. Búnaðurinn var afgreiddur á tímabilinu ágúst til desember 2017. Skilagreinina og öll útgefin skilamöt/skilagreinar/skilablöð má finna á vef FSR undir Útgefið efni.