Aðstaðan hentar ekki lengur, hvað geri ég?

Breytingar í starfsemi hins opinbera geta verið örar. Hnikanir á starfsmannahaldi eða hlutverki geta kallað á nýjar húsnæðisþarfir. 

Leigutorg FSRE hefur yfirsýn yfir fasteignir í eigu ríkisins og umsjón með leigusamningum við einkaaðila. Við höfum á að skipa sérfræðingum með mikla reynslu af því að breyta og bæta aðstöðu, starfsfólki og almenningi til heilla.

Hafðu samband við Leigutorgið til að ræða breytingar á aðstöðu. Sendið erindi á: leigutorg@fsre.is

 Vinsamlegast hafið eftirfarandi upplýsingar í póstinum:

  • Nafn stofnunar
  • Þitt nafn
  • Farsímanúmer
  • Staðsetning eignarinnar
  • Lýsandi myndir af vandamálinu

Við bregðumst við eins fljótt og auðið er.