Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi
- Verkkaupi: Umhverfis- og auðlindaráðuneytið
- Staða: Í verklegri framkvæmd
- Verkefnisnúmer: 614 2133
- Verkefnastjóri: Kristján Rafn Harðarson
Um verkefnið
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið í samvinnu við Umhverfisstofnun byggir þjónustumiðstöð í Þjóðgarði Snæfellsjökuls á Hellissandi út frá samkeppnistillögu Arkís arkitekta ehf. Aðilar hönnunarteymis eru Arkís arkitektar ehf., EFLA hf., Liska ehf. og Verkís hf.
Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu, auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins, svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði, alls um 710 m2.
Byggingin samanstendur af tveimur megin byggingum sem tengjast saman með miðrými. Önnur byggingin hýsir umsýslu fyrir daglegan rekstur þjóðgarðsins en hin starfsemi sem snýr að kennslu, fræðslu og upplýsingastarfi á hans vegum.
Byggingarframkvæmdir hófust sumarið 2020 að afloknu útboði. Verktakafyrirtækið Húsheild er aðalverktaki byggingarinnar.
Byggingin er hönnuð og byggð í samræmi við alþjóðlega umhverfisvottunarkerfið BREEAM.