Geysissvæðið í Haukadal
Opin hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið í Haukadal
- Staða: Verkefni lokið
- Verkefnisnúmer: 609 1900
- Verkefnastjóri: Halldóra Vífilsdóttir
Um verkefnið
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða veitti Bláskógabyggð styrk til að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun á Geysissvæðinu í Haukadal. Samkeppnin var haldin í samvinnu við landeigendur Geysissvæðisins og fór fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.
Vonir standa til að verðlaunaðar hugmyndir verði nýttar í áframhaldandi vinnu við gerð heildarskipulags fyrir svæðið og að hefja megi uppbyggingu á svæðinu á grundvelli þeirrar vinnu.
Verkkaupi var Sveitarfélagið Bláskógabyggð í samvinnu við landeigendur Geysissvæðisins. Verkefnastjóri og formaður dómnefndar var Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og aðstoðarforstjóri FSR. Aðrir í dómnefnd voru Birgir Þröstur Jóhannsson, arkitekt FAÍ, Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi, fulltrúi Bláskógabyggðar, Sigurður Másson, fulltrúi Landeigendafélags Geysis ehf., og Ulla Rolfsigne Pedersen, landslagsarkitekt FÍLA. Drífa Kristjánsdóttir, oddviti Bláskógabyggðar, var ritari dómnefndar.
Opin hugmyndasamkeppni
Efnt var til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal, með það að markmiði að fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins. Áhersla var lögð á raunhæfar og spennandi tillögur um heildarlausn á aðgengi hverasvæðisins og tengingu við nánasta umhverfi og að tillögur bæru með sér vandað og fallegt heildaryfirbragð sem félli vel að umhverfinu og tæki mið af helstu sérkennum svæðisins.
Alls bárust 14 tillögur og var dómnefnd samhljóma um niðurstöðuna.
1. verðlaun hlaut Landmótun sf. en hópinn skipuðu Einar E. Sæmundsen, landslagsarkitekt FÍLA, Guðrún Ragna Yngvarsdóttir arkitekt, Jóhann Sindri Pétursson, meistaranemi í landslagsarkitektúr, Lilja K. Ólafsdóttir, landslagsarkitekt FÍLA, og Yngvi Þór Loftsson, landslagsarkitekt FÍLA, í samstarfi við Argos arkitekta, Grétar Markússon, arkitekt AÍ, Stefán Örn Stefánsson, arkitekt AÍ, og Einar Ásgeir E. Sæmundsen, landslagsarkitekt FÍLA. Ráðgjöf veitti Gagarín ehf., margmiðlunarstofa.
2. verðlaun hlaut Arkiteó, Magdalena Sigurðardóttir arkitekt, Hulda Sigmarsdóttir arkitekt og Einar Ólafsson, arkitekt FAÍ.
3. verðlaun hlaut Arkís arkitektar ehf., Birgir Teitsson, arkitekt FAÍ, og Sara Axelsdóttir arkitekt en ráðgjafar við tillögugerð voru þeir Hermann Ólafsson, landslagsarkitekt FÍLA, og Guðjón L. Sigurðsson, lýsingahönnuður PLDA.
Í áliti dómnefndar um vinningstillögu segir:
"...heildarlausn er vel útfærð og tillagan leysir vel þær forsendur sem lagt var upp með. Lega stíganna er raunhæf og til þess fallin að mynda gott flæði. Upplifunarstígum og útsýnispöllum er vel fyrirkomið. Sjónlínum er haldið hreinum og er aðgangur opnaður að fleiri hverum."
Skilablað
Skilablað um hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Geysissvæðisins í Haukadal var unnið samkvæmt lögum um skipan opinberra framkvæmda. Unnið var að verkefninu árin 2013-2014. Skilablaðið og öll útgefin skilamöt/skilagreinar/skilablöð má finna á vef FSR undir Útgefið efni.