Fangelsi á Hólmsheiði

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd innanríkisráðuneytisins, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu nýs fangelsis á Hólmsheiði í Reykjavík.  Um er að ræða nýtt gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga, aðstöðu fyrir  afplánun skemmri fangelsisrefsinga og vararefsinga á Hólmsheiði í Reykjavík. Fangelsisbyggingin verður með 56 fangarýmum og  um það bil 3.700 m² (fermetrar) að stærð.  

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 30. janúar 2012 en því síðara 26. mars 2012.  Skilafrestur tillagna er 16. apríl 2012, fyrir klukkan 16.00 hjá Ríkiskaupum.  Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir króna.  Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin fyrri hluta árs 2013 og að framkvæmdir hefjist vorið 2013 og þeim verði lokið vorið 2015.  Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu.  

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 15152. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og 3.500 króna greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá klukkan 9.00 -15.00.

Í samkeppniskynningu FSR er nánar gerð grein fyrir hönnunarsamkeppninni og verður þar gerð grein fyrir vinningstillögum þegar úrslit liggja fyrir. 
Með þessari frétt er mynd sem sýnir gamla Hegningarhúsið við Skólavörðustíg sem er eitt af fangelsum fyrir gæsluvarðhald á höfuðborgarsvæðinu.