Viðbygging við Menntaskólann við Sund

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis og Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um viðbyggingu við Menntaskólann við Sund (MS), Gnoðarvogi  43, 105 Reykjavík. 

Við skólann skal reisa myndarlega viðbyggingu til að leysa úr húsnæðisvanda sem skólinn hefur orðið að búa við lengi. MS er þróttmikill framhaldsskóli sem markað hefur sér skýra framtíðarsýn um fjölbreytt og metnaðarfullt skólastarf. Með samkeppni þeirri sem nú er efnt til um viðbyggingu við MS er leitað hugmynda að bættri umgjörð um það starf.  Stærð viðbyggingarinnar er áætluð um 2.700 fermetrar.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 28. júní 2012 en því síðara 23. ágúst 2012.  Skilafrestur tillagna er 12. september 2012, fyrir klukkan 16.00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 8 milljónum króna. Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í júní 2013 og að framkvæmdir hefjist haustið 2013 og þeim verði lokið í apríl 2015.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu.

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is útboðsnúmer 15243. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg, gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og  3.500 króna greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá klukkan 9.00 til 15.00.