Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur

Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Háskóla Íslands, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um byggingu fyrir Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.

Um er að ræða um það bil 4000 m² (fermetra) byggingu, en þar af er um 1000 m² bílageymsla neðanjarðar, sem hýsa mun Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum og er staðsett vestan Suðurgötu í Reykjavík.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra 19. janúar 2012 en því síðara 7. mars 2012.  Skilafrestur tillagna er 22. mars 2012, fyrir klukkan 16.00 hjá Ríkiskaupum.

Veitt verða þrenn verðlaun að heildarfjárhæð 10 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að hönnun verði lokið og útboðsgögn tilbúin í janúar 2013 og að framkvæmdir hefjist í maí 2013 og þeim verði lokið í ágúst 2014.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES (Evrópska efnahagssvæðinu).

Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem er aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is, útboðsnúmer 15164. Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg gegn framvísun staðfestingar á þátttöku og  3.500 króna greiðslu, hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga klukkan 9.00 – 15.00.  Slóðin á vef Ríkiskaupa er http://www.rikiskaup.is/utbod/utb/15164