Samkeppnir

Hönnunarsamkeppnir hvetja til fjölbreytni, nýsköpunar og frumlegra lausna. 

Þá draga þær umræður sem eiga sér stað við dómnefndarstörf fram aðalatriði og skerpa áherslur verkefnanna. Verkkaupi fær þannig betri innsýn í ólíka þætti verkefnisins og þær lausnir sem mögulegar eru. 

Samkeppnisform ber að velja í samræmi við eðli og tilgang fyrirliggjandi verkefnis hverju sinni. 

Ábyrgð dómnefnda er mikil og því er mikilvægt að tryggja vandaða samsetningu dómnefnda í samkeppnum, svo þar fari fram fagleg og þróttmikil umræða.

Stefnurit íslenskra stjórnvalda "Menningarstefna í mannvirkjagerð" leggur áherslu á að bjóða upp á hönnunarsamkeppni þar sem við á og velja samkeppnisform í samræmi við eðli og viðgang hvers verkefnis.