Skúlagata 4, 101 Reykjavík – Endurbætur og breytingar á húsnæði

Skúlagata 4, 101 Reykjavík – Endurbætur og breytingar á húsnæði

21736: Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE), fyrir hönd Fjármálaráðuneytisins, óska eftir tilboðum í verkið: Skúlagata 4 – Endurbætur og breytingar

 

Afmörkun verkefnis

Um er að ræða endurbætur og breytingar á öllum hæðum hússins, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.

Hæðir 2, 3 og 4 eru hver um sig um 1.000 m² en 5. og 6. hæð eru minni eða um 700 m², ásamt sameiginlegri móttöku fyrir allt húsið á 1. hæð og öðrum minniháttar breytingum þar.

Má áætla að endurbætur á 1. hæð séu um 400 m².

Hönnunargögn eru tilbúin og skrifuð fyrir fyrstu þrjár hæðirnar, grunnmyndir eru tilbúnar fyrir 4. 5. og 6. hæð og eru þær sambærilegar neðri hæðum í efnisvali og hönnun, en sérteikningar fyrir efri hæðir verða tilbúnar í síðasta lagi 31. okt. 2022.

Stefnt er að því að bjóða upp á vettvangsskoðun kl. 13:00 þann 14. júní n.k.

Hagkvæmasta tilboðið verður valið á grundvelli besta hlutfalls milli verðs (95%) og gæða (5%).

Hér er um almennt útboð að ræða eins og því er lýst í 2. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016.

Fyrirspurnir varðandi verkefni 21736 skulu sendar rafrænt í gegnum TendSign og verða svör birt þar. Fyrirspurnartími rennur út laugardaginn 18. júní 2022.

 

Tilboðum skal skila í gegnum vefinn Tendsign.is fyrir kl. 12:00 mánudaginn 27. júní 2022.

Allar nánari upplýsingar um ferlið og útboðsskilmála er að finna gjaldfrjálst í útboðskerfi Ríkiskaupa, TendSign, á vefslóðinni https://tendsign.is/.

Leiðbeiningar um skráningu og skil á tilboðum er hægt að nálgast á heimasíðu Ríkiskaupa.

Sjá nánar á www.utbodsvefur.is

Útboðsnúmer: 21736

Fyrirspurnarfrestur: 18.6.2022

Opnun tilboða: 27.6.2022