ÚTBOÐ – Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn við Hamrahlíð og skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 250 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, Menntaskólanum í Kópavogi, Menntaskólanum við Hamrahlíð og skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 800 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 60 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 3. maí 2018 kl. 14.00.