Þjónustusamningur um pípulagnir

Tryggvagata 19, Laugavegur 164-166, Rauðarárstígur 25, – Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík

Númer: 267

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Tryggvagötu 19 (Tollhúsið), Laugavegi 164-166 (Ríkisskattstjóri), Rauðarárstíg 25 (Utanríkisráðuneyti), Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 850 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 60 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 13. desember 2018 kl. 14.00.