Þjónustusamningur um málun

Tryggvagötu 19 (Tollhúsið), Laugavegi 164-166 (Ríkisskattstjóri) og Rauðarárstíg 25 (Utanríkisráðuneyti

Númer: 268

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Tryggvagötu 19 (Tollhúsið), Laugavegi 164-166 (Ríkisskattstjóri) og Rauðarárstíg 25 (Utanríkisráðuneyti). Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 700 tíma í dagvinnu og 70 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 50 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 11. desember 2018 kl. 14.00.