ÚTBOÐ – Tækniskólinn – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 227 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Tækniskólanum. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á pípulögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is  

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 30. janúar 2018 kl. 14.00.