ÚTBOÐ – Skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um raflagnir

Örútboð nr. 243 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Skrifstofuhúsnæðið sem um ræðir er samtals u.þ.b. 19.000 m². Verkefnið felst í almennu viðhaldi raflagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 22. febrúar 2018 kl. 14.00.