ÚTBOÐ – Skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 263 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 750 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 50 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 24. október 2018 kl. 14.00.