ÚTBOÐ – Skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 262 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Skrifstofuhúsnæðið sem um ræðir er samtals u.þ.b. 19.000 m². Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is 

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  fimmtudaginn 11. október 2018 kl. 14.00.