ÚTBOÐ – Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 235 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Menntaskólanum við Sund og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1.100 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  miðvikudaginn 6. desember 2017 kl. 14.00.