ÚTBOÐ – Menntaskólinn við Sund og Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þjónustusamningur um málun

Örútboð nr. 229 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Menntaskólanum við Sund og Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 24. október 2017 kl. 14.00.