ÚTBOÐ 254 – Menntaskólinn í Reykjavík og Kvennaskólinn í Reykjavík – þjónustusamningur um málun

Örútboð nr. 254 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Menntaskólanum í Reykjavík og Kvennaskólanum í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Ath. að hluti þeirra bygginga sem um ræðir er friðaður og því er gerð krafa um að bjóðendur geti sýnt fram á reynslu við vinnu í friðuðum húsum.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 5. júní 2018 kl. 14.00.