ÚTBOÐ – Menntaskólinn í Reykjavík, Kvennaskólinn í Reykjavík og Menntaskólinn við Hamrahlíð – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 253 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Menntaskólanum í Reykjavík, Kvennaskólanum í Reykjavík og Menntaskólanum við Hamrahlíð. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Ath. að hluti þeirra bygginga sem um ræðir er friðaður og því er gerð krafa um að bjóðendur geti sýnt fram á reynslu við vinnu í friðuðum húsum.

Gefa skal verð í 1200 tíma í dagvinnu og 140 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 100 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  þriðjudaginn 29. maí 2018 kl. 14.00.