ÚTBOÐ – Listasöfn og heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 260 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara se

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í listasöfnum og heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi pípulagna, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 75 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 2. október 2018 kl. 14.00. =