ÚTBOÐ – Listasöfn og heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um málun

Örútboð nr. 261 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar á listasöfnum og heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1200 tíma í dagvinnu og 120 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur og 100 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 9. október 2018 kl. 14.00.