ÚTBOÐ – Listaháskóli Íslands, Árleynir 2 og Árleynir 22 – þjónustusamningur um raflagnir

Örútboð nr. 226 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Listaháskóla Íslands (Lauganesvegi 61), Árleyni 2 og Árleyni 22. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1200 tíma í dagvinnu og 120 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 100 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 10. október 2017 kl. 14.00.