ÚTBOÐ – Listaháskóli Íslands, Árleynir 2 og Árleynir 22 – þjónustusamningur um málun

Örútboð nr. 237 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Listaháskóla Íslands (Laugarnesvegi 91), Árleyni 2 og Árleyni 22. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 800 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 60 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 6. febrúar 2018 kl. 14.00.