ÚTBOÐ – Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Menntaskólinn í Kópavogi og Skipholt 37 – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 230 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, Menntaskólanum í Kópavogi og í skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 500 tíma í dagvinnu og 50 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 35 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  þriðjudaginn 7. nóvember 2017 kl. 14.00.