ÚTBOÐ – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Flensborgarskólinn og Borgartún 7 – þjónustusamningur um pípulagnir

Örútboð nr. 228 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir pípulagningarmönnum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald pípulagna í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og skrifstofuhúsnæði að Borgartún 7 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á pípulögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 700 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 50 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 17. október 2017 kl. 14.00.