ÚTBOÐ – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði og Borgartún 7 í Reykjavík – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 241 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og skrifstofuhúsnæði að Borgartún 7 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  þriðjudaginn 13. febrúar 2018 kl. 14.00.