ÚTBOÐ – Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði og Borgartún 7 í Reykjavík – þjónustusamningur um málun

Örútboð nr. 233 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald málningar í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og skrifstofuhúsnæði að Borgartún 7 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi málningar, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, miðvikudaginn 29. nóvember 2017 kl. 14.00.