Örútboð nr. 338 - Akranes, þjónustusamningur aðalverktaka

Númer: 338

Örútboð nr. 338 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á fasteignum á Akranesi. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagning og málun.

Byggingar sem um ræðir:

 
Merkigerði 9 Sjúkrahús
Heiðabraut 31 og 32 Íbúðir
Vogabraut 4 og 5 Fjölbrautaskóli Vesturlands
Þjóðbraut 13 Lögreglustöð
Stillholt 16-18 Skrifstofur

 

Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:

Iðngrein DV YV Akstur
Trésmíði 1000 100 80
Rafvirkjun 800 80 60
Pípulagnir 800 80 60
Málun 800 80 60

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn, 7. sept. 2021 kl. 14.00.