Örútboð 277 - þjónusta iðnmeistara

ÚTBOÐ - Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi, Merkigerði 9 – utanhússviðgerðir á E deild

Númer: 277

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna utanhússviðgerða á E deild við Merkigerði 9 á Akranesi (sjúkrahús). Umfang verksins takmarkast við hluta af suðausturhlið hússins. Fjarlægja skal eldri múrklæðningu af veggfleti, endurnýja glugga og klæða veggfleti á nýjan leik, með sléttri, loftræstri, 2 mm. álklæðningu á ál-leiðarakerfi.

Helstu magntölur eru:

 Sprunguþétting með fillcoat  200  m
 Endurnýjun glugga/hurða  18   stk.
 Klæðning veggflata  75   m²
 Pallar og aðstaða  1   heild

Framkvæmdatími hefst strax og tilboði hefur formlega verið tekið og skal verkinu vera að fullu lokið eigi síðar en 15. september 2019.

Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  miðvikudaginn 17. apríl 2019 kl. 14.00.