Örútboð 335 – Víkurbraut 29, Hornafirði – Endurnýjun þaks á heilsugæslu o.fl.

Númer: 335

Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar á þaki o.fl. við heilsugæsluna, Víkurbraut 29 á Hornafirði.

Verkið felur í sér að saga ofan af steyptum þakkanti á allri byggingu heilsugæslunnar Víkurbraut 29 á Hornafirði og framlengja núverandi timburþak fram yfir steypta kanta og klæða kanta og súlur með álklæðningu. Núverandi þakjárn verður fjarlægt og nýtt sett í staðinn.

Helstu magntölur:

  • Steypusögun 168 lm
  • Endurnýjun á þakjárni 970 m²
  • Álklæðning á þakkanta og súlur 229 m²
  • Þakrennur 168 lm

Verklok 1. okt. 2021

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 11. maí 2021 kl. 14.00.