Örútboð nr. 286 – Þjónustusamningur um málun í fasteignum á Akranesi í umsjá Ríkiseigna

Örútboð nr. 286 – Þjónusta iðnmeistara

Númer: 286

Örútboð nr. 286 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir málurum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í fasteignum á Akranesi í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu málningarviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 700 tíma í dagvinnu og 80 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 60 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 26. september 2019 kl. 14.00.