Örtboð nr. 330 - Fjölbrautaskólinn í Breiðholti - endurbætur lóðar 1. áfangi

Númer: 330

Örútboð nr. 330 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna endurbóta á lóð Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Austurbergi 5, 111 Reykjavík.

Verkið felst í:

  • endurnýjun malbikaðra akvega og bílastæða
  • lagningu kantsteina (vélsteyptra og forsteypta) og blandaðra hellulagna stíga og torga
  • uppbyggingu gróður- og grassvæða.
  • leggja regnvatns- og snjóbræðslulagnir með viðeigandi deili- og tengikistum og endurnýja niðurföll
  • leggja skal raflagnir og setja upp rafbúnað svæðisins.

 Framkvæmdasvæðið er um 4000m2 að stærð.


Helstu magntölur eru :

  •  malbikun um 1600m2,
  • hellulögð svæði um 1450m2,
  • gras- og gróðursvæði um 550m2.

 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 10. júní 2021 kl. 14.00.

Verklok 30. nóv. 2021