Örútboð 258 - þjónusta iðnmeistara

Örútboð nr. 258 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara

Númer: 258

Örútboð nr. 258 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Menntaskólanum á Akureyri, Þórunnarstræti 138 og Hafnarstræti 93-95 á Akureyri. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagning og málun.

Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:

 
Iðngrein DV YV Akstur
Trésmíði 900  90  60 
Rafvirkjun  700 70  50 
Pípulagnir 200  20  20 
Málun 500 50 40 

 

 

 

 

 

 

 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  miðvikudaginn 10. apríl 2019 kl. 14.00.