Viðbygging við Stjórnarráðshús, lækjargötu - Framkvæmdasamkeppni

Útboð nr. 20684

Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. forsætisráðuneytisins, býður til opinnar hönnunarsamkeppni (framkvæmdasamkeppni) um viðbyggingu við Stjórnarráðshúsið í Lækjargötu.

Um er að ræða um 1.200 m² viðbyggingu sem hýsi meðal annars flestar skrifstofur forsætisráðuneytisins, fundarrými og aðstöðu fjölmiðla. Einnig þarf að endurskoða innra skipulag Stjórnarráðshússins og tengja það við viðbygginguna.

Tvö fyrirspurnartímabil eru í samkeppninni og lýkur því fyrra, 16. maí 2018 en því síðara 23. ágúst 2018.
Skilafrestur tillagna er 25. september  2018, fyrir kl. 15:00 hjá Ríkiskaupum.
Veitt verða  verðlaun að heildarfjárhæð 10 m.kr.  þar af verða fyrstu verðlaun að lágmarki 5 m.kr.

Gert er ráð fyrir að útboðsgögn verði tilbúin á vormánuðum 2020 og að vígsla byggingarinnar gæti orðið um áramót 2021/22.

Samkeppnin fer fram í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og er auglýst á EES-svæðinu.Nánari upplýsingar er að finna í samkeppnislýsingu sem verður aðgengileg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is , útboðsnúmer 20684, frá og með þriðjudeginum 10. apríl 2018.  Til að nálgast ítargögn verður að skrá sig til þátttöku á vefnum en gögn verða einnig fáanleg á minniskubbi, gegn framvísun staðfestingar hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7c, 105 Reykjavík. Skrifstofa Ríkiskaupa er opin virka daga frá kl. 9:00 – 15:30.