Þjónustusamningur um trésmíði

Tryggvagata 19, Laugavegur 164-166 og Rauðarárstígur 25 í Reykjavík

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í Tryggvagötu 19 (Tollhúsið), Laugavegi 164-166 (Ríkisskattstjóri) og Rauðarárstíg 25 (Utanríkisráðuneyti). Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 80 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 6. desember 2018 kl. 14.00.