Örútboð 287 - Tröllaskagi - Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður Þjónustusamningur - aðalverktaka

Örútboð nr. 287 innan rammasamnings 21201 – þjónusta iðnmeistara

Númer: 287

ÚTBOÐ: Tröllaskagi - Dalvík, Ólafsfjörður og Siglufjörður

Ríkiseignir óska eftir aðalverktökum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á fasteignum á Tröllaskaga. Verkefnið felst í almennu viðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma. Þær iðngreinar sem útboðið nær yfir eru trésmíði, rafvirkjun, pípulagnir og málun.

 

Fasteign: Staður: Notkun:
Gunnarsbraut 6 Dalvík Lögreglustöð
Gunnarsbraut 4 Dalvík Sjúkrabílageymsla
Hólavegur 6 Dalvík Heilsugæslustöð
Öldugata 1 Dalvík Íbúð
Hornbrekka Ólafsfjörður Heilsugæsla/hjúkrunarheimili
Ægisbyggð 8 Ólafsfjörður Íbúð
Gránugata 4-6 Siglufjörður Lögreglustöð/sýslumaður
Túngata 3 Siglufjörður Ríkisskattstjóri/Skatturinn
Hvanneyrarbraut 37-39 Siglufjörður Sjúkrahús/heilsugæsla
Hvanneyrarbraut 58 Siglufjörður Fjölbýli (2 íbúðir)
Ártún 1 Siglufjörður Íbúð

 

Gefa skal verð í tímagjald í dagvinnu og yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstursferðir vegna efnisöflunar og útkalla. Áætlaður fjöldi tíma og akstursferða á samningstímanum (2 ár) er:

Iðngrein DV YV Akstur
Trésmíði 1800 200 140
Rafvirkjun 700 80 50
Pípulagnir 700 80 50
Málun 900 100 70

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn, 16. mars 2021 kl. 14.00.