ÚTBOÐ – Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Menntaskólinn í Kópavogi og skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 – þjónustusamningur um raflagnir

Örútboð nr. 224 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna.

Ríkiseignir óska eftir rafvirkjum til að taka þátt  í  örútboði vegna Þjónustusamnings um endurbætur og viðhald raflagna í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ, Menntaskólanum í Kópavogi og í skrifstofuhúsnæði að Skipholti 37 í Reykjavík. Verkefnið felst í almennu viðhaldi á raflögnum, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 1000 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 26. september 2017 kl. 14:00.