Örútboð nr. 300 – Þjóðbraut 13, Akranesi – Breytingar og endurbætur

Örútboð nr. 300 – Þjónusta iðnmeistara

Númer: 300

 

Örútboð nr. 300 innan rammasamnings 21201 – Þjónusta iðnmeistara

 

Ríkiseignir óska eftir iðnmeisturum til að taka þátt í örútboði vegna breytinga og endurbóta við Þjóðbraut 13, Akranesi. Verkið felst í breytingum og endurbótum á neðstu hæð hússins að Þjóðbraut 13, Akranesi. Áformað er að lögreglustöðin stækki og færist í það húsnæði sem áður var Vínbúð. 

Verklok 1. apríl 2021

Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, föstudaginn, 2. okt. kl. 14.00.