ÚTBOÐ – Heilsugæslan Hlíðum – Endurnýjun lóðar og frárennslislagna

Örútboð nr. 202 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnaðarmanna

Ríkiseignir óska eftir skrúðgarðyrkjumönnum til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar lóðar og frárennslislagna við Heilsugæsluna Hlíðum, Drápuhlíð 14-16, 105 Reykjavík. Verkið felst í heildarendurnýjun á núverandi lóð, ásamt því að koma fyrir regnvatns– og drenlögnum kringum húsið. Heildarstærð lóðar er 913,6 m².

Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is  

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, fimmtudaginn 21. desember 2017 kl. 13.00.