ÚTBOÐ – Borgartún 7 – Endurnýja yfirborð á bílastæði í porti

Örútboð nr. 244 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir verktökum til að taka þátt í örútboði vegna endurnýjunar á yfirborði bílastæðis í porti við Borgartún 7. Verkið felst í því að endurnýja yfirborð á bílaplani, grafa upp núverandi yfirborð, skipta um efsta burðarlagið, gróðursetja tré, endurnýja ljósastaura og steypa kantstein.

Helstu magntölur eru:

Rif á malbiki .................................................................................. 1.180...... m²

Gröftur ............................................................................................ 475 ...... m³

Grúsarfylling undir malbik ............................................................. 475 ...... m³

Malbik 5cm þykkt .......................................................................... 1.180 ..... m²

 

Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík kl. fimmtudaginn 22. mars 2018, kl. 10:00.