Örútboð 345 - Þjónusta iðnmeistara

Númer: 345

29. mar. 2022 14:00

Þjónustusamningur um trésmíði í menntastofnunum í umsjá Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.  Þjónustusamningur um endurbætur og viðhald í eftirfarandi fasteignum:

  • Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
  • Menntaskólinn í Kópavogi
  • Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
  • Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
  • Borgarholtsskóli
  • Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ
  • Háskóli Íslands - Skipholt 37
  • Menntaskólinn við Sund 

Örútboð nr. 345 innan rammasamnings 20201 – Þjónusta iðnmeistara

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í menntastofnunum. Verkefnið felst í almennu viðhaldi í trésmíði, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 5400 tíma í dagvinnu og 600 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 300 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.  Tímafjöldi er áætlun út samningstímann, þ.e. 2 ár.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@fsre.is

Bjóðendur skulu skila tilboðum sínum á rafrænu formi í tölvupósti á póstfangið: utbod@fsre.is
fyrir þriðjudaginn 29. mars 2022, kl. 14.00.