Örútboð 283 – Þjónustusamningur um trésmíði í fasteignum á Akranesi

Örútboð – Þjónusta iðnmeistara

Númer: 283

Þjónustusamningur um trésmíði í fasteignum á Akranesi í umsjá Ríkiseigna

Örútboð nr. 283 innan rammasamnings 15721 – Þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald í fasteignum á Akranesi í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 900 tíma í dagvinnu og 100 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 70 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla.

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík, þriðjudaginn 17. september 2019 kl. 14.00.