ÚTBOÐ - Listasöfn og heilsugæslur á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna – þjónustusamningur um trésmíði

Örútboð nr. 259 innan rammasamnings 15721 – þjónusta iðnmeistara

Ríkiseignir óska eftir trésmiðum til að taka þátt í örútboði vegna þjónustusamnings um endurbætur og viðhald á listasöfnum og heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu í umsjá Ríkiseigna. Verkefnið felst í almennu trésmíðaviðhaldi, tilfallandi breytingum og endurbótum, allt eftir þörfum á hverjum tíma.

Gefa skal verð í 2700 tíma í dagvinnu og 300 tíma í yfirvinnu. Einnig skal gefa verð í akstur, 200 ferðir vegna efnisöflunar og útkalla. 

Þeir rammasamningshafar sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á utbod@rikiseignir.is

Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík,  fimmtudaginn 27. september 2018 kl. 14:00.